Söngkona Miley Cyrus og leikarinn Liam Hemsworth tilkynntu um skilnað sinn um helgina en þau gengu í hjónband á Þorláksmessu. Það eru því aðeins rúmlega sjö mánuðir síðan þau giftu sig. Aðeins nokkrum klukkutímum áður en Cyrus sendi frá sér tilkynningu var hún mynduð kyssa Kaitlynn Carter í fríi á Ítalíu að því fram kemur á vef People.
Heimildarmaður segir að þær Cyrus og Carter eigi sameiginlega vini og eru bara að skemmta sér. Það sem gerir málið enn áhugaverðara er að ekki er nema rúmlega vika síðan að Carter og Kardashian/Jenner-hálfbróðirinn Brody Jenner tilkynntu um skilnað sinn. Kaitlynn Carter og Brody Jenner giftu sig sumarið 2018.
Cyrus og Hemsworth eru þekkt fyrir stormasamt samband en þau kynntust árið 2009 og trúlofuðu sig fyrst þremur árum seinna. Trúlofunin entist þó ekki og hætti parið saman árið 2013. Cyrus staðfesti svo árið 2016 að þau væru ekki bara byrjuð saman aftur heldur líka trúlofuð.
Cyrus hefur alla tíð talað opinskátt um áhuga sinn á konum.
„Ég er í gagnkynhneigðu sambandi en ég laðast enn kynferðislega að konum,“ sagði Cyrus í viðtali við Elle sem birtist í sumar. Í sama viðtali sagðist Cyrus ekki vilja eignast börn og kunna illa við orðið eiginkona.