Bandaríski rapparinn A$AP Rocky, sem handtekinn var í Stokkhólmi fyrr í sumar fyrir líkamsárás, var í dag fundinn sekur af sænskum dómstólum og hlaut skilorðsbundinn dóm. BBC greinir frá.
A$AP, sem er þrítugur og heitir réttu nafni Rakim Mayers, var handtekinn vegna líkamsárásar 3. júlí ásamt þremur öðrum eftir slagsmál á götum Stokkhólms 30. júní. Hann var látinn laus úr varðhaldi í byrjun ágúst, eftir réttarhöld dagana á undan og þótti sú ákvörðun benda til þess að hann yrði annaðhvort fundinn saklaus eða dómur yfir honum yrði skilorðsbundinn.
Sjálfur neitaði hann ákærunni og hélt til baka til Bandaríkjanna er hann var laus úr haldi. Sagði dómarinn árásina ekki hafa verið svo alvarlega að fangavist verði að fylgja, en ekki sé hægt að horfa fram hjá því að Rocky og lífverðir hans hafi ráðist á fórnarlambið með höggum og spörkum er það lá á jörðinni.
Tveir lífverðir rapparans, Bladimir Corniel og David Rispers, voru einnig fundnir sekir, en þeir voru látnir lausir á sama tíma og rapparinn.
Mál Rockys vakti ekki hvað síst athygli fyrir afskipti Donald Trumps Bandaríkjaforseta. Trump fór mikinn á Twitter þær vikur sem Rocky var í varðhaldi og tjáði þá ósk sína að rapparinn yrði látinn lausn. Fór hann þess meðal annars á leit við Stefan Löfven, forsætisráðherra Svía.