Sólrún Diego og unnusti hennar Frans Veigar Garðarsson munu ganga í það heilaga í Reykjavík dag, samkvæmt heimildum mbl.is.
Nokkur leynd hefur verið yfir því nákvæmlega hvar og hvenær samfélagsmiðlastjarnan og unnusti hennar munu láta pússa sig saman, en Sólrún tjáði fylgjendum sínum á Instagram í júlí síðastliðnum að hún ætlaði ekki að greina frá nákvæmri dagsetningu brúðkaupsins.
Við sama tilefni greindi hún frá því að myndatökur yrðu ekki leyfðar í brúðkaupinu.
Sólrún hefur deilt stórum hluta af undirbúningnum með fylgjendum sínum síðustu mánuði. Hún fór til dæmis ásamt vinkonum sínum í ferð til London í apríl síðastliðnum til að máta brúðarkjóla og sýndi frá hluta ferðarinnar á samfélagsmiðlum.