Talað við hina dauðu

Hlynur Pálmason hefur hlotið mikið lof fyrir kvikmyndir sínar Vetrarbræður …
Hlynur Pálmason hefur hlotið mikið lof fyrir kvikmyndir sínar Vetrarbræður og Hvítur, hvítur dagur.

Hvít­ur, hvít­ur dag­ur, önn­ur kvik­mynd leik­stjór­ans Hlyns Pálma­son­ar í fullri lengd, verður frum­sýnd hér á landi 6. sept­em­ber en hún var heims­frum­sýnd á kvik­mynda­hátíðinni í Cann­es í maí og hlaut Ingvar E. Sig­urðsson, sem fer með aðal­hlut­verk mynd­ar­inn­ar, verðlaun sem besti leik­ar­inn á Critics' Week sem er ein af hliðardag­skrám hátíðar­inn­ar.

Ingvar fer með hlut­verk Ingi­mund­ar, lög­reglu­stjóra sem býr í smá­bæ úti á landi og hef­ur verið í starfs­leyfi frá því eig­in­kona hans lést af slys­för­um. Hann vinn­ur hörðum hönd­um að því að gera upp hús fyr­ir dótt­ur sína og barna­barn, unga stúlku sem leik­in er af dótt­ur Hlyns, Ídu Mekkín. Ingi­mund grun­ar að eig­in­kona hans hafi haldið fram­hjá hon­um með manni í bæn­um og þessi grun­ur verður fljót­lega að þrá­hyggju og ljóst að mik­il reiði og sorg kraum­ar í Ingi­mundi og aðeins spurn­ing hvenær hann muni gjósa en ekki hvort.

Dótt­ir Hlyns leik­ur stór­vel í mynd­inni og þau Ingvar ná vel sam­an. Hlyn­ur seg­ir tök­urn­ar oft hafa reynt á dótt­ur hans en þau feðgin­in séu vön því að vinna sam­an. „Við höf­um alltaf verið að brasa eitt­hvað, búa til sen­ur og víd­eó­verk og taka ljós­mynd­ir, þannig að mér fannst þetta svo eðli­legt, þessi þróun, og henni líka held ég. Ég held að hún hafi haft gam­an af þessu þótt sum­ar sen­urn­ar hafi verið gríðarlega erfiðar,“ seg­ir hann.

Ingvar E. Sigurðsson og Ída Mekkín Hlynsdóttir í Hvítum, hvítum …
Ingvar E. Sig­urðsson og Ída Mekkín Hlyns­dótt­ir í Hvít­um, hvít­um degi.

Gott að búa í Hornafirði

Hlyn­ur nam við Danska kvik­mynda­skól­ann í Kaup­manna­höfn og býr nú á Höfn í Hornafirði sem er sögu­svið mynd­ar­inn­ar. Hlyn­ur ólst þar upp og sneri aft­ur eft­ir tíu ára bú­setu í Dan­mörku. Hann seg­ir gott að búa á Höfn. „Það er eins og tím­arn­ir séu fleiri í sól­ar­hringn­um, maður af­kast­ar meiru,“ seg­ir hann um æsku­slóðirn­ar. „Mér hef­ur alltaf þótt gott að vera í Hornafirði, það er marg­breyti­leg nátt­úra í kring og fal­legt.“ Veðrið er líka sí­breyti­legt þar líkt og ann­ars staðar á Íslandi og kem­ur tölu­vert við sögu í kvik­mynd­inni, m.a. hvítaþoka, rign­ing og rok.

Hlyn­ur leig­ir húsið sem Ingi­mund­ur er að gera upp í mynd­inni, er að byggja það upp og ætl­ar sér að hafa þar eins stór­an hluta af kvik­mynda­eft­irvinnslu og mögu­legt er og stefn­ir líka að því að bjóða þar upp á vinnu­stofudvöl. Í upp­hafi mynd­ar sýn­ir Hlyn­ur með áhuga­verðum hætti hvernig tím­inn líður frá and­láti eig­in­konu Ingi­mund­ar. Húsið er sýnt frá sama sjón­ar­horni í alls kon­ar veðri og árstíðirn­ar líða hjá, hver af ann­arri, með sínu skini, skúr­um og snjó­komu. Hlyn­ur seg­ist kunna bet­ur við þessa aðferð en að birta texta sem segi hversu langt sé um liðið.

Allt jafn­mik­il­vægt

„Ég hef alltaf verið svaka­lega upp­tek­inn af þess­ari bíóupp­lif­un. Þú ert lokaður inni í stóru svörtu rými með risa­stór­um skjá og ert með hljóð allt í kring­um þig. Þannig að þú get­ur búið til rosa­lega kraft­mikla upp­lif­un sem er ekki bara byggð á narra­tíf­um söguþræði held­ur líka hreyf­ingu, birtu, lit­um og fleiru,“ seg­ir Hlyn­ur um kvik­myndalist­ina.

Hann bend­ir á að þeir sem stundi sjón­ræn­ar list­ir, mynd­list og kvik­mynda­gerð, fái oft að heyra að mynd­in skipti mestu máli. „Hún hef­ur aldrei gert það fyr­ir mér,“ seg­ir Hlyn­ur, hon­um hafi alltaf þótt áhuga­verðast að allt sé jafn­mik­il­vægt í kvik­mynda­gerð; hljóðið jafn­mik­il­vægt hinu sjón­ræna, text­inn jafn­mik­il­væg­ur per­són­un­um og per­són­urn­ar jafn­mik­il­væg­ar söguþræðinum. „Ef eitt­hvað virk­ar ekki þá virk­ar ekki heild­in,“ bend­ir hann á.

Leikstjóri, leikarar og aðrir þeir helstu sem komu að gerð …
Leik­stjóri, leik­ar­ar og aðrir þeir helstu sem komu að gerð mynd­ar­inn­ar á frum­sýn­ingu henn­ar í Cann­es í maí síðastliðnum.

Eng­in end­ur­lit

– Mér finnst frá­sagnaraðferðir þínar áhuga­verðar í mynd­inni, þú sýn­ir til dæm­is nær­mynd­ir af hlut­um sem tengj­ast eig­in­konu Ingi­mund­ar þegar verið er að tala um hana í stað þess að sýna þann sem tal­ar eða mynd­ir af henni. Er þetta eitt­hvað sem þú lærðir í skóla eða tókst upp eft­ir ákveðnum leik­stjór­um? Hvaðan kem­ur þessi aðferð?

„Ég veit það ekki en ég reyndi þessi ár sem ég var í skóla að finna mitt eigið tungu­mál, ef maður get­ur sagt sem svo. Ég komst að því mjög snemma að auðvitað væri ég inn­blás­inn af mörg­um hlut­um, lista­mönn­um og fólki og reyndi virki­lega að finna mitt eigið tungu­mál því ég vissi að það myndi alltaf verða lang­mest spenn­andi ferlið fyr­ir mig og framtíðina. En ég hef alltaf verið mjög upp­tek­inn af hlut­um og hlut­ir hafa áhrif á mig þannig að mér fannst spenn­andi að sýna kon­una hans, sem er far­in, á ein­hvern hátt sem væri áhuga­verður en myndi ekki fel­ast í end­ur­liti,“ út­skýr­ir Hlyn­ur. Hann hafi aldrei upp­lifað sjálf­ur end­ur­lit og telji þá aðferð óá­huga­verða kvik­myndaklisju sem skili litlu. Hann vilji held­ur skapa ákveðinn heim og láta áhorf­end­ur búa til sína eig­in mynd af per­són­unni. „Fólk lif­ir svo ólíku lífi og hef­ur ólík­ar til­finn­ing­ar og til­finn­ingaróf. Það verður að vera pláss fyr­ir ein­stak­ling­inn til að ímynda sér.“

Tvenns kon­ar ást

– Hvaðan kem­ur þessi saga af Ingi­mundi?

„Þegar ég var bú­inn með Vetr­ar­bræður, fyrstu kvik­mynd­ina mína, sem var saga um vönt­un á ást, að þrá að vera elskaður og þráður en fá þá þrá ekki upp­fyllta, var ég far­inn að fá mik­inn áhuga á tvenns kon­ar ást. Ein gerðin er þessi sak­lausa, ein­falda og skil­yrðis­lausa ást barns eða barna­barns og hin gerðin er miklu flókn­ari, þar er ástríða og hún teng­ist maka. Mig langaði mikið að vinna með þess­ar tvær gerðir af ást og setja þær sam­an, láta þær vinna á móti og með hvor ann­arri. Þá byrjaði hægt og ró­lega að mót­ast þessi saga um Ingi­mund sem var skil­inn eft­ir með fullt af til­finn­ing­um sem hann nær ekki að vinna úr, sorg og reiði og seinna meir þenn­an stóra efa um hvað þau áttu sam­an. Hvort þetta hafi verið ekta eða allt ein­hver svik.“

Hlyn­ur seg­ir fólk oft tala um að tím­inn lækni sár á borð við þau sem hljót­ast af fram­hjá­haldi. „Ég held að þetta sé nokkuð sem við lif­um með og muni aldrei fara og er part­ur af því sem ger­ir okk­ur að áhuga­verðum mann­eskj­um.“

Óþægi­leg­ar spurn­ing­ar

Í mynd­inni fer Ingi­mund­ur til sál­fræðings og greini­lega ekki af fús­um og frjáls­um vilja. Sál­fræðitím­inn minn­ir í raun meira á yf­ir­heyrslu en sam­tal, spurn­ing­arn­ar óþægi­leg­ar og Hlyn­ur er spurður hvaða hlut­verki sál­fræðing­ur­inn gegni í frá­sögn­inni. „Ég held hann hafi komið mér svo­lítið á óvart þegar ég fór að skrifa. Það var eins og hann væri að spyrja sögu­hetj­una alls kyns spurn­inga sem ég var að velta fyr­ir mér og hægt og ró­lega varð hann að karakt­er. Mér fannst eins og því lengra sem maður færi inn í mynd­ina því meira mætti hann segja,“ svar­ar Hlyn­ur.

Ekki er þó allt há­drama­tískt í mynd­inni, sumt býsna spaugi­legt. Hlyn­ur seg­ir það með vilja gert og blaðamaður and­ar létt­ar. „Mér finnst gott að fólki þyki eitt­hvað fyndið og það er mik­ill húm­or í mynd­inni. Ég hef alltaf haft gam­an af því þegar fólk veit ekki hvort það á að hlæja en hlær samt. Þegar al­vara og húm­or er mjög ná­lægt hvort öðru og maður sér ekki mörk­in, ég hef alltaf haft gam­an af þannig húm­or og mér fannst sjálf­um mjög fyndið að taka upp marg­ar sen­ur, fannst ótrú­lega gam­an að gera þær marg­ar,“ seg­ir Hlyn­ur kím­inn.

Ingi­mund­ur ráðgáta

Hlyn­ur skrifaði hand­ritið með Ingvar í huga en Ingvar lék í stutt­mynd sem var loka­verk­efni Hlyns í Danska kvik­mynda­skól­an­um. „Við unn­um rosa­lega vel sam­an og mér fannst eins og það væri svo margt sem við gæt­um gert sem við vær­um ekki bún­ir að prófa,“ seg­ir Hlyn­ur um leik­ar­ann. Mögu­leik­arn­ir hafi verið mikl­ir og hann hafi langað að skrifa lengri mynd fyr­ir Ingvar. „Ég byrjaði að þróa og skrifa hand­ritið með hann í huga og dótt­ur mína, Ídu Mekkín. Ég spurði hann mjög snemma hvort hann væri til í þetta og hann var 100% með. Það gef­ur manni mikið að vita að ein­hver sé að skoða og lesa og sé með manni í þessu. Það gef­ur manni ákveðinn kraft.“

Hlyn­ur seg­ir að sér þyki mest spenn­andi ef eitt­hvað sé falið og þess virði að kanna frek­ar. „Það skipt­ir mig gríðarlega miklu máli að ég viti ekki allt þannig að fyr­ir mér var Ingi­mund­ur oft líka dá­lít­il ráðgáta. Ég skildi ekki alla hans hegðun og ætlaðist ekki til þess að Ingvar gerði það held­ur en sum­ir leik­ar­ar eru svaka­lega góðir að lesa hand­rit og lesa aðeins dýpra. Mér fannst hann skilja allt svo vel að þessi díal­óg­ur með karakt­era og allt sam­an varð mjög eðli­leg­ur. Ég las ein­hvers staðar að maður ætti að halda höfðinu köldu og hjart­anu heitu og mér finnst það lýsa ferl­inu einna best.“

Per­sónu­leg kvik­mynda­gerð

– Ég ræddi við kvik­mynda­fróða mann­eskju eft­ir sýn­ingu mynd­ar­inn­ar og hún sagðist m.a. sjá teng­ing­ar við gömlu rúss­nesku meist­ar­ana, Andrei heit­inn Tar­kofskíj til dæm­is. Hef­urðu orðið fyr­ir áhrif­um frá þeim?

„Ég man al­veg eft­ir því að hafa séð, eins og þú nefnd­ir, Tar­kofskíj, man eft­ir því að það hafi haft áhrif á mig af því mér fannst ein­hver vera að gera mjög per­sónu­lega sögu. Þetta var per­sónu­leg kvik­mynda­gerð sem ég þekkti kannski ekk­ert fyr­ir þann tíma,“ svar­ar Hlyn­ur. Þessi teg­und kvik­mynda sé bæði áhuga­verð og geti náð til margra. „Ég man eft­ir að hafa séð Tar­kofskíj í fyrsta sinn og er viss um að það hafi litað mig á ein­hvern hátt.“

Fal­legt, falið og dul­ar­fullt

Tit­ill mynd­ar­inn­ar er bæði ljóðrænn og for­vitni­leg­ur og í texta í upp­hafi mynd­ar fær áhorf­and­inn ákveðna skýr­ingu á hon­um. Að þegar allt sé hvítt og him­inn og jörð mæt­ist geti maður talað við hina dauðu. Þá er hvít­ur, hvít­ur dag­ur.

Hvíti lit­ur­inn, eða lit­leysið öllu held­ur, er líka áber­andi í Vetr­ar­bræðrum og seg­ist Hlyn­ur ekki vita hvort hann sé að leita í hvít­an en hann leiti hins veg­ar alltaf í það sem er falið. „Al­veg sama hvort það er lands­lag eða and­lit; ef það er eitt­hvað falið held­ur það mér í gangi,“ út­skýr­ir hann. „Ég fann þegar ég var að leita að töku­stöðum og var að keyra í Odds­skarði, sem er hár fjall­veg­ur, að þegar þar er skýjað er hvítaþoka. Og það er eitt­hvað við það að standa úti í dúna­logni og hvítaþoku, eitt­hvað stór­kost­lega fal­legt en á sama tíma eitt­hvað falið og dul­ar­fullt,“ seg­ir Hlyn­ur.

Hlyn­ur er þegar far­inn að vinna að næstu kvik­mynd. „Við erum að þróa verk­efni sem heit­ir Volaða land eft­ir ljóði Matth­ías­ar Jochumsson­ar. Það er verk­efni sem ég hef verið að þróa frá 2014 og byrjaði á á svipuðum tíma og Hvít­um, hvít­um degi. Þetta er stórt og metnaðarfullt verk­efni sem krefst gríðarlegs und­ir­bún­ings þannig að við erum á fullu í því.“

Viðtalið birt­ist í Morg­un­blaðinu 22. ág­úst 2019.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vog

Sign icon Þú ert nú loksins í þeirri aðstöðu að geta ráðið ferðinni. Nú skiptir öllu að hugsa til framtíðar og spara hverja krónu. Reyndu að setja þér reglur og fara eftir þeim.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vog

Sign icon Þú ert nú loksins í þeirri aðstöðu að geta ráðið ferðinni. Nú skiptir öllu að hugsa til framtíðar og spara hverja krónu. Reyndu að setja þér reglur og fara eftir þeim.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar