Bieber-hjónin giftu sig loksins aftur

Bieber-hjónin nýgift.
Bieber-hjónin nýgift. Skjáskot/Instagram

Rúmlega ár er síðan Justin og Hailey Bieber gengu löglega í hjónaband en í gærkvöldi var loksins komið að formlegri athöfn sem beðið hefur verið eftir með eftirvæntingu. Tónlistarmaðurinn og fyrirsætan létu pússa sig saman í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum að því er fram kemur á vef People. 

Bieber-hjónin létu pússa sig saman fyrir framan 154 gesti, þar á meðal Kendall Jenner, Camilu Morrone og umboðsmann Bieber, Scooter Braun. Athöfnin fór fram í kapellu en veislan á lúxushótelinu Monta­ge Pal­metto Bluff.

Heimildarmaður People greinir frá því að fyrir athöfnina hafi gestir safnast saman í fordrykk. Eftir athöfnina var boðið upp á kokteila en að þeim tíma loknum var kvöldverður. 

Þó svo að ekki hafi verið sýnt beint frá brúðkaupinu á Instagram fóru hjónin ekki beint í felur með brúðkaupið. Rétt áður en tónlistarmaðurinn gekk upp að altarinu birti hann mynd af úri á Instagram sem hann sagðist hafa gefið sjálfum sér brúðargjöf. 

View this post on Instagram

Got my self a lil wedding gift ... thanks @jadellebh

A post shared by Justin Bieber (@justinbieber) on Sep 30, 2019 at 3:27pm PDT

View this post on Instagram

My bride is 🔥

A post shared by Justin Bieber (@justinbieber) on Oct 1, 2019 at 2:11am PDT




mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir