Harry Bretaprins segist elska Vilhjálm bróður sinn afar heitt en að þeir séu hvor á sinni vegferðinni þessa stundina og hittist því minna.
Harry var spurður um samband sitt við eldri bróðurinn í nýrri heimildamynd um opinbera heimsókn hans og Meghan til Afríku í lok september og byrjun október. Sögusagnir hafa komist á kreik þar sem því er haldið fram að brestir séu í sambandi bræðranna.
Harry segir mikinn þrýsting fylgja því að tilheyra konungsfjölskyldunni og þeim störfum sem hann gegnir sem prins.
„Við erum bræður og verðum alltaf bræður. Við erum hvor á sinni vegferðinni núna en ég mun alltaf styðja hann og ég veit að hann mun alltaf styðja mig. Við hittumst ekki jafn mikið núna og áður af því að við erum svo uppteknir en ég elska hann afar heitt. En sem bræður eigum við góða daga og slæma,“ segir Harry.