Körfuboltakappinn Lamar Odom hefur trúlofast kærustu sinni, Sabrinu Parr. Parið greindi frá trúlofun sinni á Instagram. Odom skrifaði á Instagram að Parr væri sú eina rétt en Odom hefur hingað til ekki haft heppnina með sér þegar kemur að konum. Hann varð heimsfrægur fyrir hjónaband sitt og Khloé Kardashian.
Odam og Parr greindu frá sambandi sínu á Instagram í ágúst en í sama mánuði fóru að heyrast fréttir af sambandinu. Þau hafa því ekki verið lengi saman en greinilega nógu lengi til þess að vera viss um að þau vilji vera saman það sem eftir er.
Odom, sem hefur glímt við margvíslegan fíknivanda, var kvæntur Kardashian í tæp sjö ár frá 2009 til 2016. Hjónaband þeirra var ekki dans á rósum og segist Odom sjá eftir hvernig hann hagaði sér á meðan þau voru gift. Khloé sótti tvisvar um skilnað meðan á hjónabandi þeirra stóð. Hún stóð þó þétt við bakið á honum eftir að hann lenti á spítala eftir að hafa tekið of stórann skammt af lyfjum árið 2015.
View this post on InstagramIntroducing my new fiancé!! Soon to be Mrs. Parr-Odom. She the ONE!!!! @getuptoparr
A post shared by Lamar Odom (@lamarodom) on Nov 11, 2019 at 6:13pm PST