Hollywood-leikarinn Chris Pratt er mættur til landsins. Leikarinn birti myndskeið á Instagram þar sem hann var staddur á jökli á Íslandi. Pratt er á landinu við tökur á myndinni The Tomorrow War en fleiri stórstjörnur á borð við J.K. Simmons fara með hlutverk í myndinni.
Pratt spyr fylgjendur sína hvort þeir geti giskað á það hvar í heiminum hann sé staddur við tökur. Hann lýsir landinu sem köldu, fallegu og búnu til úr ís. Að lokum segir hann aðdáendum sínum frá því að landið heiti Ísland. Hann sýnir einnig mynd af upphækkuðum jeppa.
Leikstjóri kvikmyndarinnar er Chris McKay, en hann leikstýrði meðal annars The Lego Batman-kvikmyndinni. Myndin sem bar vinnuheitið Ghost Draft á að gerast í framtíðinni þar sem mannkynið er að tapa stríði við geimverur. Til að vinna stríðið finna vísindamenn leið til að sækja hermenn úr fortíðinni.