Andrés prins er ekki bara búinn að koma Elísabetu Bretadrottningu og Karli bróður sínum í óþægilega stöðu vegna vinskapar við auðkýfinginn og barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Eldri dóttir hans, Beatrice prinsessa, er einnig í afar óþægilegri stöðu. Prinsessan trúlofaði sig í haust og er nú sögð þurfa að hætta við fyrirhuguð áform um trúlofunarveislu.
Beatrice prinsessa og unnusti hennar Edoardo Mapelli Mozzi ætluðu sér að halda trúlofunarveislu 18. desember á veitingastað í Lundúnum að því er fram kemur á vef Daily Mail. Beatrice er sögð ætla að breyta staðsetningunni þar sem að staðurinn er of áberandi í ljósi vandræða föður hennar.
Andrés prins virðist ekki bara vera óvinsæll meðal Breta heldur einnig meðal fjölskyldu sinnar. Ekki er vitað hvaða áhrif skandall föður Beatrice hefur á brúðkaupið sjálft sem er fyrirhugað með vorinu.