Sænska tónlistarkonan Marie Fredriksson er látin, 61 árs að aldri, en hún gerði garðinn frægan sem annar liðsmaður sænska poppdúettsins Roxette, sem naut mikilla vinsælda á níunda og tíunda áratugnum.
Umboðsmaður Fredriksson greindi frá andláti hennar, að því er segir á vef BBC. Roxette sló í gegn með smellum á borð við The Look, Joyride og It Must Have Been Love.
Umboðsmaður Fredriksson segir í yfirlýsingu að hún hafi látist í gær eftir að hafa glímt við krabbamein í 17 ár.
„Þú varst yndislegur vinur í rúm 40 ár,“ sagði tónlistarmaðurinn Per Geesle sem var hinn hluti Roxette-dúettsins. „Ekkert verður eins og það var,“ bætti hann við.