Leikkonan Jennifer Aniston hló að brandara fyrrverandi eiginmanns síns, Brad Pitt, á Golden Globe-verðlaunahátíðinni í nótt.
Pitt kitlaði hláturtaugar fræga fólksins þegar hann gerði grín að kvennamálum sínum, en Pitt kom án konu á verðlaunahátíðina. „Mig langaði að bjóða mömmu minni með en ég gat það ekki af því að fjölmiðlar segja alltaf að sú kona sem stendur við hliðina á mér sé kærastan mín. Og það hefði bara verið vandræðalegt,“ sagði Pitt.
Um leið og Pitt hafði sleppt orðinu beindust myndavélarnar að Aniston sem sást hlæja á meðal annarra gesta.
Bæði voru þau tilnefnd til verðlauna á hátíðinni. Pitt fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Once Upon a Time... In Hollywood, sem hann vann, og Aniston fyrir hlutverk sitt í þáttunum The Morning Show.