Ofurfyrirsætan Irina Shayk og leikarinn Bradley Cooper virðast eiga í góðu sambandi þrátt fyrir að hafa hætt saman síðasta sumar. Þau mættu bæði í sömu veisluna eftir að BAFTA-verðlaunin voru afhent í Lundúnum á sunnudaginn.
Þau voru mynduð saman þegar inn var komið að því fram kemur á vef Daily Mail. Shayk birti myndir af sér í veislunni en hún var klædd í nærfatnað og netakjól yfir. Birti hún meðal annars myndir af sér með Riccardo Tisci, listrænum stjórnanda Burberry, sem og Edward Enninful, ritstjóra breska Vogue.
Saman eiga þau Cooper og Shayk þriggja ára gamla dóttur. Shayk var einmitt í viðtali við breska Vogue á dögunum þar sem hún talaði opinskátt um sambandsslit sín og Coopers. Þar sagði hún að þótt tvær frábærar manneskjur væru í sambandi þýddi það ekki að sambandið yrði frábært.
View this post on InstagramMajor Tisci moment @riccardotisci17
A post shared by irinashayk (@irinashayk) on Feb 2, 2020 at 3:10pm PST
View this post on InstagramLet the night begin.. @edward_enninful
A post shared by irinashayk (@irinashayk) on Feb 2, 2020 at 2:04pm PST