Alltaf með skýra sýn

Hildur Guðnadóttir sést hér með bandarísku kvikmyndagerðarkonunni Carol Dysinger (t.v.) …
Hildur Guðnadóttir sést hér með bandarísku kvikmyndagerðarkonunni Carol Dysinger (t.v.) og leikstjóranum Elenu Andreicheva í Los Angeles í nótt. AFP

Bróðir Hildar Guðnadóttur segir fjölskylduna virkilega stolta af henni. Hún hafi alltaf verið með mjög skýra sýn á það sem hún vilji og að hún nái markmiðum sínum.

„Það voru miklar væntingar og við bjuggumst öll við þessu, en það dregur ekki úr þessu magnaða afreki sem þetta er. Við erum bara hrikalega stolt af henni,“ segir Þórarinn Guðnason, bróðir Hildar og gítarleikari hljómsveitarinnar Agent Fresco, spurður hvort hann hafi verið bjartsýnn á að Hildur myndi hljóta Óskarsverðlaunin eftir mikla sigurgöngu, bæði með tónlist sína í kvikmyndinni Joker og svo úr sjónvarpsþáttaröðinni Chernobyl.

Þórarinn Guðnason, bróðir Hildar og gítarleikari hljómsveitarinnar Agent Fresco.
Þórarinn Guðnason, bróðir Hildar og gítarleikari hljómsveitarinnar Agent Fresco. mbl.is/Styrmir Kári

Systkinin hafa unnið mikið saman undanfarin ár og hefur Þórarinn verið Hildi innan handar í hennar stærstu verkefnum. Hann segir það magnað að vera loks farinn að sjá rödd hennar skína í gegn eftir allt harkið.

Fær viðurkenningar fyrir verk þar sem hún hefur hvað mest frelsi

„Að fá að sjá hana fá þessi verkefni þar sem hún fær fullt frelsi til að tjá sig og ljá þessum myndum rödd sína. Þessi verkefni sem hún er að fá viðurkenningarnar fyrir eru þau verkefni sem hún hefur kannski fengið hvað mest frelsi til að setja sitt eigið mark á og fengið að stjórna ferðinni algjörlega.

Hún er ein sú duglegasta og hún er alltaf með mjög skýra sýn á hvað hún vill. Stundum skilur maður ekki alveg hvert hún er að fara, en hún er alltaf með eitthvert markmið í huga sem hún stefnir að og hún kemst alltaf þangað á endanum,“ segir Þórarinn. 

Aðspurður hvað Hildur hafi fram yfir aðra á sviði kvikmyndatónlistar segir Þórarinn það fyrst og fremst vera hvað allt sé persónulegt sem hún geri. „Hún myndi ekki gera tónlist sem væri  henni ekki kær.“

„Það voru miklar væntingar og við bjuggumst öll við þessu, …
„Það voru miklar væntingar og við bjuggumst öll við þessu, en það dregur ekki úr þessu magnaða afreki sem þetta er. Við erum bara hrikalega stolt af henni,“ segir Þórarinn Guðnason, bróðir Hildar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Lífið leikur við þig þessa dagana og rómantíkin blómstrar. Hún er allra meina bót og byggir þig upp til frekari átaka.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Lífið leikur við þig þessa dagana og rómantíkin blómstrar. Hún er allra meina bót og byggir þig upp til frekari átaka.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan