Unglingurinn sem neitaði að klippa hár sitt mættur á Óskarinn

Hinn ungi DeAndre Arnold.
Hinn ungi DeAndre Arnold. AFP

Hinn ungi DeAndre Arnold, sem komst í fréttir á dögunum fyrir að neita að klippa hár sitt fyrir skólann, er mættur á Óskarsverðlaunahátíðina.

Arnold mætti sem gestur Matthew A. Cherry og Karen Rupert, leikstjóra og framleiðanda stuttmyndarinnar Hair Love sem er tilnefnd til verðlaunanna í ár.

Leikkonan Gabrielle Union og eiginmaður hennar, körfuboltamaðurinn Dwayne Wade flugu honum og móður hans frá Texas til Los Angeles.

Arnold komst í heimsfréttir fyrr á þessu ári þar sem hann neitaði að klippa hár sitt. Honum var tjáð af skólayfirvöldum í skólanum sínum í Texas-ríki að hann fengi ekki að koma í útskrift sína frá skólanum nema hann klippti hár sitt. 

Arnold var gestur í spjallþætti Ellen DeGeneres í janúar þar sem hann ræddi um af hverju hann vildi ekki klippa hár sitt.



Leikstjórinn Matthew A. Cherry, DeAndre Arnold og framleiðandinn Karen Rupert …
Leikstjórinn Matthew A. Cherry, DeAndre Arnold og framleiðandinn Karen Rupert Toliver. AFP
DeAndre Arnold ásamt teyminu á bak við Hair Love.
DeAndre Arnold ásamt teyminu á bak við Hair Love. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur verið hrókur alls fagnaðar að undanförnu og ættir að gefa sjálfum þér frí frá félagslífinu. Gefðu þér tíma til að slaka á.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur verið hrókur alls fagnaðar að undanförnu og ættir að gefa sjálfum þér frí frá félagslífinu. Gefðu þér tíma til að slaka á.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup