Leikarinn Russell Crowe virðist vera búinn að ákveða hver fær hans atvæði í Söngvakeppni sjónvarpsins sem fer fram laugardaginn 29. febrúar.
Crowe birti frétt um lag Daða og Gagnamagnsins á Twitter nú fyrir skömmu og lét orðið „Song“ eða „Lag“ fylgja með. Fréttin er af hollenska miðlinum Songfestival nieuws þar sem lögunum sem komust áfram í undankeppnunum tveimur er raðað í sæti. Daði og Gagnamagnið með lag sitt Think About Things er þar efst á blaði.
Crowe er mikill aðdáandi Íslands og hélt meðal annars með íslenska landsliðinu á EM árið 2016 og hvatti liðið áfram á Twitter.
Song.
— Russell Crowe (@russellcrowe) February 19, 2020
https://t.co/qhsVquyPeQ