Vök hlýtur átta tilnefningar

Hljósmveitin Vök hlýtur flestar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir tónlistarárið …
Hljósmveitin Vök hlýtur flestar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir tónlistarárið 2019. Ljósmynd/Sigga Ella

Vök, Hipsumhaps, Ingi Bjarni, Sykur og Sinfóníuhljómsveit Íslands hljóta flestar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna í ár sem kynntar voru í dag en verðlaunin verða veitt í Silfurbergi í Hörpu 11. mars.

Í tilkynningu segir m.a. að tónlistarárið 2019 verði lengi í minnum haft fyrir margar sakir og að sköpunarkraftur og áræðni íslensks tónlistarfólks hafi ekki farið fram hjá neinum, hvorki á Íslandi né erlendis. Á engan sé hallað með því að minnast sérstaklega á framlag Hildar Guðnadóttur með tónlist hennar við sjónvarpsþættina Chernobyl og kvikmyndina Joker og skrautfjaðrir íslensks tónlistarfólks á árinu margar. Einnig sé mikil nýliðun í tónlistargeiranum og margt spennandi að gerast þar.

Alls 38 verðlaun í fjórum meginflokkum

Íslensku tónlistarverðlaunin eru byggð á fjórum meginflokkum, flokki popp-, rokk-, hipphopp- og raftónlistar; flokki djass- og blústónlistar, flokki sígildrar- og samtímatónlistar og flokki annarrar tónlistar og eru í honum veitt verðlaun fyrir tónlist í opnum flokki, kvikmynda- og leikhústónlist og fyrir þjóðlaga- og heimstónlist. Alls verða veitt 38 verðlaun auk Heiðursverðlauna Íslensku tónlistarverðlaunanna og segir í tilkynningu að líkt og undanfarin ár skeri nokkur verðlaun sig úr, þ.e. Bjartasta vonin í sígildri og samtímatónlist og í djass-og blústónlist sem er útnefnd af dómnefnd og tilkynnt á verðlaunahátíðinni sjálfri. Bjartasta vonin í flokki popp-, rokk-, hipphopp- og raftónlistar er tilnefnd af starfsfólki Rásar 2 og fer kosning fram á vefnum ruvmenning.is. Sérstök dómnefnd á vegum Albumm.is sér um tilnefningar til tónlistarmyndbands ársins og kosning um það fer fram á heimasíðu Albumm þar sem einnig er hægt að horfa á myndböndin átta sem hlutu tilnefningu.

Í flokki popp- og rokktónlistar hlýtur hljómsveitin Vök flestar tilnefningar í ár eða átta fyrir plötu sína In the Dark og nýliðarnir í Hipsumhaps hljóta sex tilnefningar. Gjörningahópurinn Hatari hlýtur sjö tilnefningar og Sykur og Grísalappalísa fimm. Í flokki sígildrar og samtímatónlistar er það Sinfóníuhljómsveit Íslands sem stendur upp úr með fimm tilnefningar og Íslenska óperan hlýtur þrjár. Tónlistarhátíðin Myrkir músikdagar fær fjórar tilnefningar.

Í flokki djass- og blústónlistar er Ingi Bjarni Skúlason með flestar tilnefningar, fimm talsins og þrjár hljóta ADHD, Sigurður Flosason og Einar Scheving.
Í opnum flokki hlýtur Hildur Guðnadóttir þrjár tilnefningar, tvær í flokki leikhús- og kvikmyndatónlistar og Kristín Anna Valtýsdóttir og Ásta Kristín Pjetursdóttir hljóta tvær tilnefningar.

Bubbi lék lög af nýjustu plötunni sinni, Regnbogans stræti, á …
Bubbi lék lög af nýjustu plötunni sinni, Regnbogans stræti, á regnbogalituðum Skólavörðustíg í fyrrasumar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tilnefningarnar eftir flokkum eru svohljóðandi:


Rokk, popp, raftónlist, rapp og hipp hopp


Plata ársins – Rokk
Bubbi Morthens - Regnbogans stræti
Grísalappalísa - Týnda rásin
Of Monsters and Men - Fever Dream
Singapore Sling - Killer Classics
Une Misere - Sermon


Plata ársins – Popp
Between Mountains - Between Mountains
Hipsumhaps - Best gleymdu leyndarmálin
K. óla - Allt verður alltílæ
Sin Fang - Sad Party
Vök - In the Dark

Plata ársins – Raftónlist
Sykur - JÁTAKK
Sunna Margrét - Art of History
Dj Flugvél og geimskip - Our Atlantis
Bjarki - Happy Earthday
Janus Rasmussen - Vín


Plata ársins – Rapp og hipp hopp
Cell 7 - Is anybody listening?
Countess Malaise - HYSTERÍA
Joey Christ - Joey 2

Söngvari ársins

Arnar Guðjónsson
Auður
Högni Egilsson
Júníus Meyvant
Klemens Hannigan


Söngkona ársins
Agnes Björt Andradóttir
Ásta Kristín Pjetursdóttir
Katla Vigdís Vernharðsdóttir
Margrét Rán Magnúsdóttir
Sigríður Thorlacius


Lag ársins – Popp
Auður - „Enginn eins og þú“
Ásgeir - „Upp úr moldinni“
Hipsumhaps - „Lífið sem mig langar í“
Hjaltalín - „Baronesse“
Vök - „In the dark“


Lag ársins – Rokk
Grísalappalísa - „Þrjúhundruðsextíuogfimmdagablús (sjáðu hjónin)“
Hatari - „Hatrið mun sigra“
Hipsumhaps - „Fyrsta ástin“
Of Monsters and Men - „Aligator“
Une Misere - „Sermon“


Lag ársins – Rapp og hipp hopp
Cell 7 - „Peachy“
Flóni - „Falskar ástir“
Joey Christ - „100p“
Lag ársins - Raftónist
Kraftgalli - „Rússíbani“
Sunna Margrét - „The Art of History“
Sykur - „Svefneyjar“


Textahöfundur ársins
Bubbi Morthens
Fannar Ingi Friðþjófsson (Hipsumhaps)
Gunnar Ragnarsson og Baldur Baldursson (Grísalappalísa)
Hatari
Margrét Rán Magnúsdóttir (Vök)


Lagahöfundur ársins
Agnes Björt Andradóttir, Halldór Eldjárn, Kristján Eldjárn, Stefán Finnbogason (Sykur)
Arnar Guðjónsson og Hrafn Thoroddsen (Warmland)
Fannar Ingi Friðþjófsson, Jökull Breki Arnarson og Magnús Jóhann Ragnarsson (Hipsumhaps)
Hatari
Margrét Rán Magnúsdóttir (Vök)


Tónlistarviðburður ársins
Auður - Afsakanir - Útgáfutónleikar
Bræðslan
Hatari í Eurovision
Hjaltalín í Eldborg
Iceland Airwaves


Tónlistarflytjandi ársins
Auður
Hatari
Sykur
Une Misere
Vök

Bjartasta vonin
Gróa
Hipsumhaps
K. Óla
Krassasig
Zöe


Tónlistarmyndband ársins
Bjarki - ANa5. Leikstjóri: Daníel Heimisson & Baldvin Vernharðsson
Doctor Victor feat. SVALA - Running Back. Leikstjóri: Anna Maggý
Hatari - Hatrið mun sigra. Leikstjóri: Baldvin Vernharðsson & Klemens Hannigan
Krummi - Stories To Tell. Leikstjóri: Frosti Jón Runólfsson
Of Monsters and Men - Wars. Leikstjóri: WeWereMonkeys
Oscar Leone - Superstar. Leikstjóri: Einar Egils
Vök - In the Dark. Leikstjóri: Elí.
Warmland - Blue Place. Leikstjóri: Bernhard Kristinn & Warmland

Sinfóníuhljómsveit Íslands á æfingu.
Sinfóníuhljómsveit Íslands á æfingu. mbl.is/Eggert Jóhannesson



Sígild- og samtímatónlist


Plata ársins
Benedikt Kristjánsson - Drang in die Ferne
Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Daníels Bjarnasonar - Concurrence
Strokkvartettinn Siggi - South of the Circle
Sæunn Þorsteinsdóttir - Vernacular
Þóranna Dögg Björnsdóttir - LUCID


Tónverk ársins
„Enigma“ - Anna Þorvaldsdóttir
„Music to accompany your sweet splatter dreams“ - Bára Gísladóttir
„Mysterium op. 53“ - Hafliði Hallgrímsson
„Crevace, konsert fyrir flautu og fagott“ - Páll Ragnar Pálsson
„Lendh“ - Veronique Vaka


Söngvari ársins

Benedikt Kristjánsson
Fjölnir Ólafsson
Oddur Arnþór Jónsson


Söngkona ársins
Dísella Lárusdóttir
Guja Sandholt
Herdís Anna Jónasdóttir


Tónlistarflytjandi ársins - einstaklingar
Bjarni Frímann Bjarnason
Laufey Jensdóttir
Sæunn Þorsteinsdóttir
Sigurgeir Agnarsson
Víkingur Heiðar Ólafsson


Tónlistarflytjandi ársins - hópar
Elektra Ensemble - Fagnaði 10 ára starfsafmæli með útgáfu á geisladiski með verkum samin fyrir hópinn
Kammersveit Reykjavíkur - Lokatónleikar Myrkra músikdaga. Kammersinfóníur Schönbergs og Adams
Sinfóníuhljómsveit Íslands - Hljóðritun og útgáfur, tónleikar og tónleikaferðir árið 2019


Tónlistarviðburður ársins - einstakir tónleikar
Hafnarborg: Hljóðön - Sýning tónlistar. Opnunarhátíð Myrkra músíkdaga
Ljóðadagar Óperudaga í Reykjavík - The Little Match Girl Passion/Death speaks
Nordic Affect - Rökkur með Nordic Affect og Maja S. K. Ratkje
Sinfóníuhljómsveit Íslands - Sinfóníuhljómsveit Íslands á Myrkum músíkdögum undir stjórn Daníels Bjarnasonar 
Strokkvartettinn Siggi - Tónlistarhátíð Rásar 1


Tónlistarviðburðir ársins - hátíðir og tónleikaraðir
Listvinafélag Hallgrímskirkju: Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju
Myrkir músíkdagar: Myrkir Músíkdagar 2019
Reykjavík midsummer music : Reykjavík midsummer music 2019
Bjartasta von í sígildri og samtímatónlist verður kynnt 11. mars þegar tónlistarverðlaunin verða afhent í Hörpu.

Anna Gréta Sigurðardóttir er tilnefnd sem lagahöfundur ársins í flokki …
Anna Gréta Sigurðardóttir er tilnefnd sem lagahöfundur ársins í flokki djass- og blústónlistar.



Djass og blús


Plata ársins
ADHD - ADHD 7
Einar Scheving - Mi Casa, Su Casa
hist og - Days of Tundra
Ingi Bjarni Skúlason - Tenging
Tómas Ragnar Einarsson - Gangandi bassi


Tónverk ársins
„AVI“ - Andrés Þór
„Ballad for my fearless friend“ -Ingi Bjarni Skúlason
„Counting Sheep“ - Sigurður Flosason
„Hangir“ - ADHD
„Óravídd“ - Einar Scheving


Lagahöfundur ársins
Anna Gréta Sigurðardóttir
Einar Scheving
Ingi Bjarni Skúlason
Mikael Máni Ásmundsson
Tómas Ragnar Einarsson


Tónlistarflytjandi ársins - einstaklingur
Andrés Þór
Anna Gréta Sigurðardóttir
Ingi Bjarni Skúlason
Sigurður Flosason
Sunna Gunnlaugsdóttir


Tónlistarflytjandi ársins - hópar
ADHD
hist og
Ingi Bjarni Kvintett
Sigurður Flosason DeLux
Stórsveit Reykjavíkur


Tónlistarviðburður ársins
Tónleikaröð Stórsveitar Reykjavíkur
Tónleikadagskrá Jazzklúbbsins Múlans í Hörpu
Freyjujazz
Bjartasta von í djass og blús verður kynnt á sjálfri hátíðinni 11. mars.

Hildur Guðnadóttir með Óskarsverðlaunin sem hún hlaut í byrjun mánaðar …
Hildur Guðnadóttir með Óskarsverðlaunin sem hún hlaut í byrjun mánaðar fyrir tónlist sína við Joker. AFP



Önnur tónlist: Opinn flokkur, kvikmynda- og leikhústónlist, þjóðlaga- og heimstónlist


Plata ársins – Opinn flokkur
Hlökk - Hulduhljóð
Kristín Anna - I must be the devil
Kristofer Rodríguez Svönuson - Primo
Marína Ósk - Athvarf
Ólafur Björn Ólafsson og Jo Berger Myhre - Lanzarote


Plata ársins – þjóðlagatónlist
Ásta - Sykurbað
Góss - Góssentíð
Lára Rúnars - Rótin
Ragnheiður Gröndal - Töfrabörn
Umbra - LLIBRE VERMELL


Plata ársins – leikhús- og kvikmyndatónlist
Arnar Guðjónsson - France terres sauvages
Herdís Stefánsdóttir - The sun is also a star
Hildur Guðnadóttir - Chernobyl
Hildur Guðnadóttir - Joker
Tryggvi M. Baldvinsson og Einar Sv. Tryggvason - Flatey


Lag ársins/tónverk ársins í opnum flokki
Ásta - „Sykurbað“
Hróðmar I. Sigurbjörnsson og Ragnheiður Erla Björnsdóttir - „Konan og selshamurinn“
Lára Rúnars - „Altari“
Marína Ósk - „Rigning“
Teitur Magnússon - „Skriftagangur“


Plötuumslag ársins
Cell7 - Is anybody listening?
Countess Malaise - HYSTERÍA
Dj. Flugvél og geimskip - Our Atlantis
Grísalappalísa - Týnda rásin
Kristin Anna - I must be the devil


Upptökustjórn ársins
Grísalappalísa – Týnda rásin. Albert Finnbogason: Upptökustjórn, upptökur og hljóðblöndun. Tumi Árnason: Annar stýrimaður, auka
upptökur. Finnur Hákonarson: Hljómjöfnun
Hildur Guðnadóttir - Chernobyl. Hildur Guðnadóttir og Sam Slater: Upptökustjórn og gerð hljóðmyndar
hist og - Days of Tundra. Albert Finnbogason: Upptökustjórn, upptökur og hljóðböndun. Paul Corley: Hljómjöfnun
Sinfóníuhljómsveit Íslands - Concurrence. Daniel Shores: Upptökustjórn og gerð hljóðmyndar
Vök – In The Dark. James Earp, Margrét Rán Magnúsdóttir og Einar Hrafn Stefánsson: Upptökustjórn og gerð hljóðmyndar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup