Sif og Embla sem standa að baki hlaðvarpsþáttunum Klikkaðar kynlífssögur auglýsa nú eftir fólki sem er tilbúið að deila með þeim áhugaverðum og öðruvísi kynlífssögum.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við klikkadarkynlifssogur@gmail.com eða á Instagram. Þær gefa einnig möguleika á því að senda inn nafnlausar sögur en í fyrstu seríu var einn þáttur helgaður nafnlausum kynlífssögum.
Fyrsti þátturinn í 2. seríu mun fara í loftið 15. mars næstkomandi og á öðrum hverjum sunnudegi eftir það. Þættirnir verða aðgengilegir hér á vef mbl.is og einnig á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
View this post on InstagramA post shared by Klikkaðar Kynlífssögur (@klikkadarkynlifssogur) on Jan 27, 2020 at 12:45pm PST