Leikarinn Frankie Muniz gekk að eiga unnustu sína Paige Price nú á dögunum. Muniz sem er best þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Malclom in the Middle segir að brúðkaupsdagurinn hafi verið besti dagur lífs hans.
Muniz og Price gengu í það heilaga 21. febrúar. „Mér hefur alltaf fundist það algjör klisja þegar fólk segir að brúðkaupsdagurinn þess sé besti dagur lífs þess, eins og það væri eitthvað sem þeim finnst það þyrfti að segja. En nei, brúðkaupsdagurinn minn var bókstaflega besti dagur lífs míns,“ sagði Muniz í viðtali við People.
Hin nýgiftu hjón trúlofuðu sig í nóvember árið 2018.