Áhrifavaldurinn Binni Löve og barnsmóðir hans, leikkonan Kristín Pétursdóttir, eru hætt saman. Binni er nú þegar byrjaður að leita að ástinni aftur og er byrjaður á stefnumótaforritinu Tinder.
Parið fyrrverandi á saman soninn Storm sem kom í heiminn árið 2018. Binni opnaði sig um föðurhlutverkið í október sama ár á mbl.is.
„Það var hreint út sagt magnað, tilfinningin og andrúmsloftið er ótrúlegt. Það að horfa á manneskju sem þú elskar örmagna að gefa allt sem að hún á í að fæða barn er stórkostlegt. Styrkurinn sem ég varð vitni að er nokkuð sem ég hefði ekki getað ímyndað mér. Og líkaminn, vá hvað hann er magnaður, að þetta sé yfirhöfuð hægt er mér óskiljanlegt,“ sagði Binni um fæðingu sonar síns.