Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og unnusta hans, Carrie Symonds, hafa gefið nýfæddum syni sínum nafn. Wilfred Lawrie Nicholas Johnson heitir eftir forfeðrum og læknunum sem önnuðust Johnson á sjúkrahúsinu vegna COVID-19.
Wilfred Lawrie Nicholas Johnson fæddist á miðvikudag aðeins nokkrum dögum eftir að faðir hans sneri til vinnu að nýju eftir alvarleg veikindi af völdum kórónuveirunnar.
Symonds birti mynd á Instagram af henni með drenginn. „Ég kynni Wilfred Lawrie Nicholas Johnson sem fæddist 29.04.20 klukkan 9 að morgni," skrifar hún.
„Wilfred eftir afa Boris, Lawrie eftir afa mínum, Nicholas eftir Dr Nick Price og Dr Nick Hart— læknunum tveimur sem björguðu lífi Boris í síðasta mánuði,“ skrifar Symonds.
Hún þakkaði starfsfólki fæðingardeildar UCLH háskólasjúkrahússins sem sinnti fjölskyldunni.
Tilkynning um fæðingu drengsins kom ýmsum á óvart því flestir töldu að nokkrir mánuðir væru í fæðingu. Þetta er fyrsta barn Symonds en Johnson á að minnsta kosti fimm börn, þar af fjögur með seinni eiginkonu sinni Marina Wheeler en þau skildu árið 2018.
Johnson mun fara í fæðingarorlof að sögn talsmanns hans en parið er fyrsta ógifta parið sem býr saman í húsnæði forsætisráðherra í Downing stræti og drengurinn er þriðja barnið sem starfandi forsætisráðherra eignast í Bretlandi.