Leikararnir Cole Sprouse og Lili Reinhart eru hætt saman eftir þriggja ára samband. Parið kynntist við tökur á þáttunum Riverdale. Þau hafa áður hætt saman en eins og er eru þau ekki saman að því er fram kemur í erlendum slúðurmiðlum.
Heimildarmaður People segir parið nú vera hætt saman en talsmenn leikaranna vildu ekki tjá sig um málið þegar miðillinn leitaði eftir því.
Heimildarmaður Page Six segir að parið hafi hætt saman áður en kórónuveirufaraldurinn fór að hafa áhrif á daglegt líf í Bandaríkjunum. Þau hafa því ekki verið saman í samkomubanni en eru þó sögð góðir vinir.
Riverdale-leikarinn, Skeet Ulrich, og kærasta hans, Megan Blake Irwin, gáfu í skyn að parið væri hætt saman í lifandi streymi á Instagram. Þar var Ulrich sem leikur föður Sprouse á skjánum spurður hvort honum þætti Cole Sprouse og Lili Reinhart sætt par.
„Mér fannst þau vera sætt par,“ svaraði Ulrich. „Þau voru mjög sætt par,“ sagði Irwin einnig og lagði áherslu á þátíðina í setningunni.