Beyoncé gaf óvænt út nýtt lag í gær, á þrælafrídaginn (e. Juneteenth), en þess er þá minnst að á þeim degi árið 1865 var síðustu þrælum í Bandaríkjunum gefið frelsi.
Textinn í laginu, sem heitir Black Parade, er helgaður réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum.
„Put your fists up in the air, show black love,“ og „Need peace and reparation for my people,“ segir meðal annars í textanum. Lagið hefur fengið tæp milljón áhorf á YouTube.
Þrælafrídagurinn á rætur sínar að rekja til Texas, heimaríkis Beyoncé, en nú er haldið upp á hann víða um land og er frídagur í nokkrum ríkjum og vilja margir að dagurinn sé gerður að frídegi á landsvísu. Hefur sú krafa fengið byr undir báða vængi í mótmælum gegn kynþáttafordómum sem geisað hafa um öll Bandaríkin síðustu vikur.
Í textanum vísar Beyoncé einnig í kórónuveirufaraldurinn og lögregluofbeldi, sem og Tamiku Mallory, sem er ötull aðgerðasinni þegar kemur að kvenréttindum og réttindum svartra.
Beyncé hefur látið til sín taka í réttindabaráttunni upp á síðkastið, meðal annars með því að hvetja Daniel Cameron, ríkissaksóknara Kentucky-ríkis í Bandaríkjunum, til þess að leggja fram ákæru á hendur þremur lögreglumönnum sem komu að morðinu á Breonnu Taylor.
Þá opnaði hún nýverið heimasíðu þar sem sjá má lista yfir fyrirtæki sem eru í eigu svartra Bandaríkjamanna, fyrirtæki sem selja allt frá tískufatnaði til húsgagna.