Rapparinn Eminem er sagður hræddur um hvað Mariah Carey mun segja um sig í væntanlegri ævisögu. Eminem og Carey áttu í stuttu en stormasömu sambandi árið 2001 sem entist í aðeins sex mánuði.
„Hann veit að hún mun segja ýmislegt neikvætt um hann,“ segir heimildamaður. Carey og Eminem eru sögð hafa átt í mjög eitruðu sambandi. Hann er viss um að hún muni fara út í persónuleg smáatriði og gera lítið úr frammistöðu hans í rúminu. Þar liggur óöryggi hans falið og hún mun nýta sér það.
Eminem hefur talað illa um Carey í viðtölum. Árið 2002 sagðist hann ekki líka við hana sem manneskju. „Ég ber virðingu fyrir henni en hún er ekki með allt sitt á hreinu. Ég læt þar við sitja og segi að hún sé falleg kona.“
Carey sló fast til baka og sagðist aldrei hafa verið í sambandi við hann og gerði lítið úr honum í laginu Clown sem kom út 2002.