Halle Berry deildi dularfullri mynd af sér með ónafngreindum karlmanni og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Nú vilja allir vita hver dularfulli maðurinn er en Halle Berry hefur verið einhleyp í töluverðan tíma eftir að upp úr slitnaði milli hennar og barnsföður hennar Oliviers Martinez.
Berry hefur sagt í viðtölum að hún ætli að einbeita sér að sjálfri sér til þess að hún geti valið betur þegar kemur að næstu samböndum. „Ég þarf ekki að vera í sambandi. Það er engin þörf á að flýta sér eða sætta sig við eitthvað sem er ekki 100% rétt. Ég ætla að bíða þar til sá rétti kemur, annars verð ég bara ein með börnunum mínum og haga lífi mínu eins og ég geri,“ sagði Berry í viðtali við People fyrr á árinu. Berry á tvö börn frá fyrri samböndum, Nöhlu 12 ára og Maceo sex ára.
Á myndinni má sjá bera kvenmanns- og karlmannsleggi og við myndina skrifar hún „sunnudagur til sælu“ með hjartatjákni. Ljóst þykir að með myndbirtingunni sé stjarnan að gefa til kynna að fjör sé að færast í ástalífið.
View this post on InstagramA post shared by Halle Berry (@halleberry) on Jul 19, 2020 at 6:10pm PDT