Jóakim, sonur Margrétar Þórhildar Danadrottningar og Hinriks Danaprins, gekkst undir heilaskurðaðgerð á sjúkrahúsi í borginni Toulouse í Frakklandi vegna blóðtappa.
Hann var lagður inn á sjúkrahús í gær og var nánast samstundis sendur í aðgerðina sem gekk vel. Ástand hans er sagt stöðugt og er eiginkona hans Marie prinsessa hjá honum en frekari upplýsingar eru ekki gefnar upp á vefsíðu dönsku hirðarinnar.
Hjónin eru búsett í Frakklandi þar sem Jóakim stundar nám í Herskólanum í París og vinnur sem varnarmálasérfræðingur í danska sendiráðinu í París.