Friðrik krónprins Danmerkur heimsótti Jóakim bróður sinn á dögunum í Frakklandi þar sem hann dvelur og er að jafna sig eftir heilaskurðaðgerð vegna blóðtappa. Sagt er að Jóakim sé allur að koma til en þurfi ró og næði.
Jóakim sem er 51 árs hefur undanfarið dvalið í Frakklandi starfa sinna vegna en hann var í sumar skipaður hermálafulltrúi danska sendiráðsins í París til þriggja ára.
View this post on InstagramA post shared by DET DANSKE KONGEHUS 🇩🇰 (@detdanskekongehus) on Aug 12, 2020 at 1:14am PDT