GDRN aflýsir útgáfutónleikum

Guðrún Ýr Eyfjörð
Guðrún Ýr Eyfjörð Arnþór Birkisson

Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, sem gengur alla jafna undir listamannsnafninu GDRN, hefur ákveðið að fresta útgáfutónleikum sínum sem áttu að fara fram 4. september. Upphaflega stóð reyndar til að þeir færu fram í byrjun sumars en kórónuveirufaraldurinn setti strik í reikninginn.

GDRN sendi svohljóðandi tilkynningu til aðdáenda sinna á samfélagsmiðlum í dag:

„Vegna COVID-19 og samkomutakmarkana verða tónleikarnir sem að áttu að eiga sér stað þann 4. september ekki haldnir. Því miður sjáum við okkur ekki fært að halda tónleika af þessari stærðargráðu á meðan ástandið er eins og það er. Við munum tilkynna nýja dagsetningu á næstunni og látum ykkur vita um leið og hún hefur verið staðfest. Þeir sem eiga miða á tónleikana geta haldið þeim og þurfa ekki að gera neitt. Þeir miðar verða áfram í gildi. Ef þið viljið fá miðana endurgreidda getið þið haft samband við tix.is með tölvupósti á info@tix.is.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Við hlökkum til að sjá ykkur þegar tónleikarnir verða loks haldnir.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Einhver þér eldri og reyndari getur gefið þér góð ráð í dag. Mundu að það er fleiri ein leið að takmarkinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Sofia Rutbäck Eriksson
2
Torill Thorup
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Sarah Morgan
5
Solja Krapu-Kallio
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Einhver þér eldri og reyndari getur gefið þér góð ráð í dag. Mundu að það er fleiri ein leið að takmarkinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Sofia Rutbäck Eriksson
2
Torill Thorup
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Sarah Morgan
5
Solja Krapu-Kallio