Ferð með fyrirheiti

Úr uppfærslu Reykjavík Ensemble á Ég kem alltaf aftur í …
Úr uppfærslu Reykjavík Ensemble á Ég kem alltaf aftur í leikstjórn Pálínu Jónsdóttur.

„Ég missti af hinni rómuðu Íslandsheimsókn pólska meistarans Tadeusz Kantors og leikhópsins Cricot 2 á Listahátíð 1990. Eins og títt er um framúrstefnuleg stórvirki hef ég bæði heyrt vitnisburði frá fólki sem varð fyrir nánast trúarlegri upplifun á Ég kem aldrei aftur, og séð nokkra leikhúsgesti skopast með tilburðina. Aðallega að leikstjóranum sjálfum, sem var kannski frægastur fyrir að taka sér einatt stöðu á sviðinu með leikhópnum sínum og gefa fyrirskipanir meðan á sýningum stóð. Ekkert liggur eins vel við höggi gárunganna og þegar listamenn leggja á ókönnuð svæði tjáningarinnar og sækja svo langt í dýptina eftir innblæstri að flestum þykir einfaldara að fylgja þeim ekki eftir heldur horfa á þá úr öruggri fjarlægð háðfuglsins,“ skrifar Þorgeir Tryggvason, leiklistargagnrýnandi Morgunblaðsins, í listapistli um leikhúsgjörning Reykjavík Ensemble, Ég kem alltaf aftur, sem sýnd var í Klúbbi Listahátíðar í Reykjavík í Iðnó um helgina. Listapistillinn birtist fyrst í Morgunblaðinu miðvikudaginn 2. september. 

„Pálína Jónsdóttir hefur verið í fyrri hópnum. Áður en sýning hófst á Ég kem alltaf aftur flutti hún nokkur inngangsorð um vinnu hópsins og minningar sínar um sýningu Cricot 2 sem að hennar sögn breytti sýn hennar á hvað leikhús gæti verið, og þar með lífi hennar. Sjálf steig Pálína samt ekki á svið í Iðnó til að hafa áhrif á gang mála, heldur eftirlét það félögum sínum í Reykjavík Ensemble, þeim Adam Switała, Ewu Marcinek, Jördisi Richter, Magdalenu Tworek, Mao Alheimsdóttur, Karolinu Bogusławska, Robert Zadorozny og Wiolu Ujazdowska.

Stofnendur Reykjavík Ensemble þær Pálína Jónsdóttir, leikstjóri og listrænn stjórnandi, …
Stofnendur Reykjavík Ensemble þær Pálína Jónsdóttir, leikstjóri og listrænn stjórnandi, og Ewa Marcinek, verkefnastjóri og rithöfundur, þegar tilkynnt var að Reykjavík Ensemble hefði verið valinn listhópur Reykjavíkur 2020.

Sýningin er kölluð verk í vinnslu, og Pálína talaði um níu daga sem hópurinn hafði til umráða í Iðnó áður en áhorfendum var hleypt inn. Þeir hafa verið vel nýttir. Óreiðan í sýningunni stafar ekki af fumi og fáti heldur einmitt af trú á að línuleg rökvísi og vitsmunalegur agi sé, ef ekki til óþurftar, þá allavega óþarfur til að hreyfa við áhorfendum.

Það er alveg rétt. Brotakenndar, næstum kúbískar myndir leikhópsins úr veruleika sínum – pólskum og íslenskum, sögulegum og nútímalegum, persónulegum og pólitískum, trúarlegum og hversdagslegum, harmrænum og fyndnum – opnuðu hugmyndaflug áhorfenda og héldu athygli salarins áreynslulaust í þann klukkutíma sem sýningin stóð. Afslöppuð nærvera og alvörublandin glettni hópsins var hárrétt til að draga okkur inn í heiminn og láta okkur í léttu rúmi liggja að skilja ekki allt.

Auðvitað er allt önnur orka í sýningu sem unnin er á þessum hraða í íslenska atinu en í djúpri og langvinnri samvinnu og djúpköfun á borð við þá sem Kantor og aðrir sjáendur og vitringar leikhússins á tuttugustu öld fóru í áður en áhorfendum var hleypt að borðinu. En þannig virkar innblástur á alvörulistamenn eins og Pálínu og hennar fólk: kallar ekki fram eftiröpun heldur hvetur til dáða í eigin leit að möguleikum og viðfangsefnum. Opnar dyr sem enginn veit hvert liggja fyrr en gengið er um þær, eða alla vega kíkt inn.

Hér er arkað af stað af hugrekki og gleði. Það verður gaman að hitta Reykjavík Ensemble á næsta áfangastað. Þau munu koma aftur.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Lífið leikur við þig þessa dagana og rómantíkin blómstrar. Hún er allra meina bót og byggir þig upp til frekari átaka.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Lífið leikur við þig þessa dagana og rómantíkin blómstrar. Hún er allra meina bót og byggir þig upp til frekari átaka.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan
Loka