Harry Bretaprins fagnar 36 ára afmæli í dag fjarri fjölskyldu sinni en hann er fluttur til Bandaríkjanna með eiginkonu sinni Meghan hertogaynju og syni þeirra Archie. Þrátt fyrir sífelldan orðróm um ósætti við uppátæki Harrys óskar fjölskyldan honum til hamingju með afmælið á samfélagsmiðlum.
„Óskum Harry prins hjartanlega til hamingju með afmælið í dag,“ var skrifað á samfélagsmiðla hertogahjónanna af Cambridge. Með hamingjuóskunum fylgdi mynd af þeim Vilhjálmi, Katrínu og Harry frá árinu 2017.
Harry fékk einnig hamingjuóskir frá ömmu sinni, Elísabetu drottningu, og föður, Karli Bretaprinsi.
Ósætti á að hafa komið upp á milli bræðranna Harrys og Vilhjálms í kringum brúðkaup Harrys og Meghan. Vilhjálmur á að hafa varað Harry við að giftast Meghan eftir stutt samband og varð Harry ósáttur við bróður sinn út af því. Sömuleiðis eru sögusagnir þess efnis að ekki séu allir par sáttir við nýjan samning Harrys og Meghan við Netflix um framleiðslu á sjónvarpsefni.
Wishing a very happy birthday to Prince Harry today! 🎂🎈 pic.twitter.com/Y8BDRzixGs
— The Duke and Duchess of Cambridge (@KensingtonRoyal) September 15, 2020
🎂 🎈 Wishing The Duke of Sussex a very happy birthday!
— The Royal Family (@RoyalFamily) September 15, 2020
.
📸 The Queen and The Duke during a Queen’s Young Leaders reception at Buckingham Palace in 2017. pic.twitter.com/M992gwGfjE
Wishing a very happy birthday to The Duke of Sussex today! 🎂 pic.twitter.com/a3PZGhX41H
— The Prince of Wales and The Duchess of Cornwall (@ClarenceHouse) September 15, 2020