Tónlistarmaðurinn Kanye West birti myndband af sér á Twitter í gær þar sem hann pissar á Grammy-verðlaun. West hefur birt fjölda færslna á Twitter síðastliðna sólarhringa og í gær birti hann einnig símanúmerið hjá Randall Lane, ritstjóra Forbes, og var settur í bann á samfélagsmiðlinum.
Færslunni með símanúmeri Lane var eytt út í gær en myndbandið af Grammy-verðlaununum er enn inni.
Óljóst er hvort þetta voru hans eigin Grammy-verðlaun en hann hefur unnið 21 Grammy-verðlaun svo hann hefur nægu að taka af. Hann vann síðast Grammy-verðlaun árið 2013.
Bandaríska tónlistarkonan Diane Warren var ekki hrifin af gjörningi West og skammaði hann fyrir að pissa á verðlaunin. „Hversu ógeðslegt og hversu mikið óvirðing. Þú fékkst þessi verðlaun frá jafningjum þínum fyrir vinnuna þína og þú ert bókstaflega að pissa á þau. Ég hef unnið Grammy-verðlaun einu sinni og ég verð ævinlega þakklát fyrir að jafningjar mínir töldu mig þess verðug,“ skrifaði Warren.
Trust me ... I WONT STOP pic.twitter.com/RmVkqrSa4F
— ye (@kanyewest) September 16, 2020