Donald Trump Bandaríkjaforseti hjólaði í Meghan hertogaynju af Sussex og Harry Bretaprins eftir að þau hvöttu fólk í Bandaríkjunum til þess að skrá sig á kjörskrá á þriðjudaginn.
Trump var spurður út hvað honum fyndist um að Meghan og Harry væru að hvetja til þess að „fólk kysi Joe Biden“ á blaðamannafundi á miðvikudag. „Ég er ekki aðdáandi hennar og ég myndi orða þetta svona, og hún hefur líklegast heyrt þetta áður, ég óska Harry góðs gengis, því hann þarf á því að halda,“ sagði Trump.
Harry og Meghan hafa ekki hvatt til þess að fólk kjósi einn frambjóðenda í forsetakosningunum í Bandaríkjunum fram yfir annan. Prinsinn hvatti til þess að tilvonandi kjósendur myndu „hafna hatursorðræðu, misvísandi upplýsingum og neikvæðni í netheimum“ í ræðu sinni á þriðjudag.
Meðlimir bresku konungsfjölskyldunnar hafa hefðinni samkvæmt ekki sagt neitt opinberlega um kosningar eða stjórnmál, hvort sem það sé í sínu heimalandi eða öðru landi. Harry og Meghan sögðu skilið við bresku krúnuna í upphafi árs 2020 en samt sem áður þykir athyglisvert að þau láti stjórnmálin sig varða.
The Times leitaði eftir viðbrögðum frá Buckinghamhöll í vikunni og fengu þau svör að orð Harrys væru persónuleg.
„Hertoginn vinnur ekki fyrir konungsfjölskylduna og allt það sem hann kann að gefa út er persónulegt,“ sagði í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni.
Buckingham Palace has said it won’t comment on the Duke of Sussex’s remarks about voting: “We would not comment. The Duke is not a working member of the Royal Family and any comments he makes are made in a personal capacity.”
— Roya Nikkhah (@RoyaNikkhah) September 23, 2020