Bandaríski rithöfundurinn Dan Brown er nú staddur hér á landi. Ef marka má Facebook-síðu hans hefur hann dvalið á Siglufirði undanfarna daga.
Brown virðist meðal annars hafa heimsótt Síldarsafnið og farið í göngu á Tröllaskaga. Hann hefur áður heimsótt Ísland árið 2018 þegar hann meðal annars heimsótti stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Þá var það bókaforlagið Bjartur sem bauð Brown til landsins, en svo virðist sem hann er hér nú í fríi.
Brown er hvað þekktastur fyrir skáldsögur á borð við Engla og Djöfla, Da Vinci lykilinn, Týnda táknið og Inferno.
Who knows the name of the museum I'm visiting?
Posted by Dan Brown on Föstudagur, 25. september 2020
I just hit a traffic jam outside of Siglufjordur.
Posted by Dan Brown on Sunnudagur, 27. september 2020