Ragnar Jónasson rithöfundur er staddur á Siglufirði með vini sínum og kollega Dan Brown.
mbl.is greindi frá því í kvöld að Brown hefði verið staddur hér á landi síðustu daga.
Ragnar birti mynd af þeim félögum á Siglufirði á Twitter. Ragnar og Brown hittust einnig þegar Brown kom síðast til landsins árið 2018. Þá snæddu þeir hádegisverð ásamt Yrsu Sigurðardóttur rithöfundi og ræddu sín á milli um bókmenntir og fleira.
Visiting Ari Thor’s Siglufjordur with my friend @AuthorDanBrown pic.twitter.com/onnxWroUCO
— Ragnar Jonasson (@ragnarjo) September 28, 2020