Leikkonan Margaret Nolan er látin 76 ára að aldri. Nolan var hvað best þekkt fyrir að fara með hlutverk í James Bond-kvikmyndinni Goldfinger.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Edgar Wright, sem leikstýrði henni í hennar síðustu mynd, Last Night in Soho, greindi frá andláti hennar á samfélagsmiðlum.
Nolan fæddist árið 1943 í Somerset í Bretlandi og kom fyrst fram undir nafninu Vicky Kennedy. Hún fór með hlutverk í Bítlakvikmyndinni A Hard Day's Night sem stúlkan með Wilfrid Brambell í spilavíti.
It's my sad duty to report that actress and artist, the magnificent Margaret Nolan has passed away. She was the middle of Venn diagram of everything cool in the 60's; having appeared with the Beatles, been beyond iconic in Bond and been part of the Carry On cast too. 1/4 pic.twitter.com/YaEaWDmLt2
— edgarwright (@edgarwright) October 11, 2020