Baggalútur sendir frá sér nýja plötu í dag. Platan heitir Kveðju skilað og inniheldur ný lög eftir Braga Valdimar Skúlason við vísur og kvæði vesturíslenska skáldsins Káins (1860-1936).
Platan kemur út í dag á streymisveitum og á geisladiski, en hún verður einnig fáanleg á vínilútgáfu hinn 10. desember. Mun hún auk nýju laganna innihalda valin lög af hljómplötunni Sólskinið í Dakota, sem kom út á geisladiski árið 2009.
Platan fæst í verslunum Pennans, Lucky Records, Reykjavík Recordshop, Smekkleysu, 12 tónum, Heimkaupum, á Plötubúðin.is og í vefverslun Öldu Music en þar er einnig hægt að forpanta vínilútgáfuna. Plötuna má einnig finna á Spotify og hlusta á í spilaranum hér fyrir neðan.