Leikarinn Russell Crowe er kominn með nýja kærustu, sú heitir Britney Theriot. Crowe er 56 ára en nýja kærastan aðeins þrítug og því 26 árum yngri en leikarinn. Parið sást kyssast í tennis í Sydney dögunum.
Á vef The Sun birtust myndir af parinu láta vel hvort að öðru í tennis. Crowe sást kyssa Theriot sem vafði óskarsverðlaunahafann örmum. Theriot er ekki ókunn leiklistinni en hún lék í myndinni Broken City sem kom út árið 2013. Crowe fór einmitt með eitt aðalhlutverkið í myndinni. Síðan þá er Theriot sögð hafa einbeitt sér að fasteignaviðskiptum.
Crowe hætti með eiginkonu sinni, Daniellu Spencer, árið 2012 en skilnaðurinn gekk ekki formlega í gegn fyrr en sex árum síðar. Crowe og Spencer kynntust fyrst árið 1989 og voru sundur og saman í nokkur ár. Þau létu loks pússa sig saman árið 2003 og eiga tvo drengi, 14 og 16 ára.