Jóhanna Guðrún og Ingó nýja Grease-parið

Ingó og Jóhanna Guðrún fara með hlutverk Danny og Sandy.
Ingó og Jóhanna Guðrún fara með hlutverk Danny og Sandy. Ljósmynd/Saga Sig

Tónlistarfólkið Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, bregður sér í hlutverk eins þekktasta pars kvikmyndasögunnar í tónleikauppsetningu á söngleiknum Grease í Laugardalshöll laugardagskvöldið 23. október 2021 og laugardagskvöldið 4. september 2021 í íþróttahöllinni á Akureyri í samstarfi við handknattleikdeild Þórs.

Jóhanna Guðrún verður í hlutverki Sandy, sem bresk-ástralska leik- og söngkonan Olivia Newton-John lék og gerði heimsfræga. „Það er algjör draumur að taka þátt, við Ingó höfum talað um það í mörg ár hvað það yrði gaman að taka þátt í svona sýningu saman,“ segir Jóhanna Guðrún, sem er spennt fyrir hlutverkinu, en hún hefur áður tekið þátt í uppfærslum á lögum ABBA. „Svo er ég brjálaður Grease-aðdáandi frá blautu barnsbeini.“

Aðspurð segir hún að uppáhaldslag hennar úr kvikmyndinni sé Hopelessly Devoted To You. „Ég elska öll lögin úr myndinni, en ef ég verð að velja eitt þá er það Hopelessly Devoted To You, það er svo fallegt og mikið söngkonulag.“

Ljósmynd/Saga Sig

Ingó verður í hlutverki Dannys, sem bandaríski töffarinn og dansarinn John Travolta lék og heillaði okkur upp úr skónum. „Ég er spenntur að taka þátt í sýningunni því ég er ekki mikill leikhúskall. Fer frekar bara alltaf á Grease því það eru góð lög og einföld saga sem gengur upp,“ segir Ingó, en þetta er í fyrsta sinn sem hann tekur þátt í tónleikasýningu eins og þessari. Uppáhaldslag hans úr Grease er We Go Together. „Maður kemst bara í gott skap við það lag og svo er það mikill dans og mig dauðlangar að geta dansað.“

Stefanía Svavarsdóttir söngkona, sem áður hefur meðal annars tekið þátt í ABBA-uppfærslum með Jóhönnu Guðrúnu, og Stefán Jakobsson, söngvari þungarokkshljómsveitarinnar DIMMU, verða Jóhönnu Guðrúnu og Ingó til halds og trausts, auk söngvara og annars listafólks, sem munu sjá til þess að ekkert verði til sparað á tónleikunum í Laugardalshöll til að gera upplifun og skemmtun gesta sem allra mesta. Tónleikarnir verða fullir af gleði þar sem Jóhanna Guðrún, Ingó og aðrir leikarar, dansarar og átta manna hljómsveit sem skipuð er topptónlistarmönnum, auk myndbanda á risaskjáum, munu fá að njóta sín í frábæru hljóði og ljósi.

Forsala póstlista Tix.is fer fram mánudaginn 14. desember kl. 10.00 á tix.is.

Almenn miðasala hefst þriðjudaginn 15. desember kl 12.00 á tix.is.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hafðu augun hjá þér og láttu einskis ófreistað til þess að komast til botns í því máli, sem þú hefur tekið að þér. Græddur er geymdur eyrir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hafðu augun hjá þér og láttu einskis ófreistað til þess að komast til botns í því máli, sem þú hefur tekið að þér. Græddur er geymdur eyrir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Loka