Ekkert nema rokk og ról

Henrik Björnsson í myndbandi við lagið Soul Kicks af nýju …
Henrik Björnsson í myndbandi við lagið Soul Kicks af nýju plötunni.

Good Sick Fun nefnist nýútkomin 12 laga plata Singapore Sling. Er þar við stjórnvölinn, sem fyrr, Henrik Baldvin Björnsson og segir hann í tölvupósti að platan sé fyrst og fremst inspíreruð af gömlu rokki og róli. Plötuna samdi hann á fyrstu mánuðum ársins og var hún hljóðblönduð í sumar af Guðlaugi Halldórssyni og Henrik. Var þá einnig tekinn upp hljóðfæraleikur aukahljóðfæraleikara, Haukur Gröndal lék á tenór- og barítónsaxófóna í „Touch The Filth“ og Axel Björnsson gerði gítarhávaða, eins og Henrik orðar það, í laginu „Sickin' Street“. Bakraddir sungu Tatjana Dís, Elsa María Blöndal og Anna Björnsson og um masteringu sá Ryan Van Kriedt.

Hlustar á sína innri rödd

Henrik skrifar að í hvert sinn sem hann geri plötu þýði það að rokk og ról hafi bjargað lífi hans, huga og sál, enn einu sinni. „Stundum gerist það að ég sogast inn í eitthvert bull og fer að halda að það skipti einhverju máli. En átta mig síðan á því að ekkert skiptir máli nema rokk og ról. Þá bý ég til plötu,“ skrifar Henrik. Hann er beðinn að útskýra hvað hann eigi við með þessu, inn í hvaða bull hann hafi sogast og haldið að það skipti máli.

„Hmmmm... til dæmis átta ég mig á því að ég er farinn að éta skít og ég hef ekki hugmynd af hverju ég er að því og mér finnst það ömurlegt. Eflaust hefur einhver fáviti sagt mér að þetta væri það eina sem væri í boði og ég hef verið illa fyrirkallaður og látið plata mig. Þá allt í einu heyri ég mína innri rödd segja: „Ekki gleyma. Ekkert skiptir máli nema rock'n'roll.“ Þá hætti ég að éta skít,“ segir Henrik.

Töffararokk

–Singapore Sling var einu sinni hljómsveit en er þetta núna eins manns verkefni, þú einn?

„Þetta er eins og það hefur alltaf verið. Það er band sem spilar með mér „live“ og stundum spilar einhver inn á eitthvað á plötunum. Og stundum fæ ég aðstoð við upptökur og mix.“

–Þú samdir plötuna og tókst upp heima hjá þér á fyrstu mánuðum ársins. Hvernig er platan í samanburði við fyrri plötur Singapore Sling? „ Ég skil ekki spurninguna. En ég hef samt mjög gaman af henni,“ segir Henrik kíminn.

–Arnar Eggert kallar þetta töffararokk í pistli hér í blaðinu árið 2017 en hvað kallar þú þessa tónlist?

„Töffararokk er fínt heiti á þessa tónlist. Fyrir mér er þetta fyrst og fremst rock'n'roll. Sem er alls ekki það sama og rokk. Rokk er drasl fyrir rokkhnakka. Rock'n'roll er allt annað. Ætli rock'n'roll sé ekki bara það sem Arnar Eggert og fleiri kalla töffararokk. Það mætti þá kalla rokk „hnakkarokk“,“ svarar Henrik.

Rokkarinn Henrik Baldvin Björnsson.
Rokkarinn Henrik Baldvin Björnsson. Heiða Jónsdóttir

Er ekki að tala til allra

Good Sick Fun heitir platan og þú segir sjálfur um þann titil: „gerum rangt og höfum gaman af því í staðinn fyrir að reyna alltaf að gera „rétt“ og vera með móral yfir því að takast það ekki. Gefum skít í reglur og venjur og vægðarleg gildi. Gerum það sem okkur sýnist!“ Er ekki hætt við glundroða fylgi fólk þessum tilmælum?

„Ef allir myndu gera það sem þeim sýndist færi allt til fjandans en ekki á kúl hátt þar sem flestir eru fávitar. En ég er auðvitað ekki að tala til allra. Ég er aðeins að tala við þann litla hóp fólks sem hlustar á Singapore Sling og það er almennt afburðavel gefið fólk. Og ef það fólk fylgir þessum tilmælum gerist eitthvað stórkostlegt.“

Hér má sjá myndband við lagið „Touch the Filth“ af Good Sick Fun.

Spáir ekki í ímynd

–Hversu mikilvægt finnst þér að vera með heildstæða, samræmda fagurfræði? Það virðist skipta þig miklu máli, útlitið og ímyndin. Ég hef til að mynda séð þig keyrandi um á mjög svo hversdagslegum bíl í leðurjakkanum, með rokksólgleraugu og rokkhárgreiðslu.

„Hahahahaha. Leðurjakki, „rokksólgleraugu“ og „rokkhárgreiðsla“ er minn hversdagsklæðnaður. Hvernig öðruvísi ætti ég að vera þegar ég er að keyra? Wtf? En jú, ég spái í útlitið. Hver gerir það ekki? En ímynd er eitthvað sem þú ert að spá í. Ekki ég. Ég spái fyrst og fremst í stemningu. Og útlit og stemning fer alltaf saman, samanber hrekkjavöku og jólin.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar