Félagarnir í Vinum og vandamönnum hafa ákveðið að kveðja árið 2020 með því að segja því að drífa sig út og hafa birt myndarlegt tónlistarmyndband við frumsamið lag og texta eftir Leif Geir Hafsteinsson.
Glöggir áhorfendur taka óhjákvæmilega eftir því að meðal Vina og vandamanna má finna einstakling sem flestir ef ekki allir landsmenn þekkja til á einn eða annan hátt, Þórólf Guðnason sóttvarnalæknir.