Streymisveitan Netlfix berst nú við að láta fjarlægja efni úr sinni nýjustu þáttaröð, Bridgerton, af klámsíðum. Heitum kynlífssenum úr þáttunum hefur verið lekið á þekktar klámsíður.
Samkvæmt heimildum Daily Mail hefur Netflix tekist að ná efni sínu út af nokkrum síðum en það er enn aðgengilegt á öðrum.
Bridgerton hefur notið þó nokkurra vinsælda síðan þeir komu inn á Netflix á jóladag og hafa yfir 63 milljónir heimila í öllum heiminum horft á þættina.