Veðbankar spá Daða Frey og Gagnamagninu sigri í Eurovison söngvakeppninni sem fer fram í Rotterdam í maí næstkomandi. Daði hefur þó ekki enn gefið út lagið sem hann mun fara með í keppnina en ljóst er að mikil spenna ríkir fyrir laginu.
Lag Daða, Think About Things, átti að vera framlag Íslands í Eurovision á síðasta ári en keppninni var frestað vegna kórónuveirunnar. Lagið naut hins vegar mikilla vinsælda um allan heim.
Lokakeppni Eurovision fer fram í Rotterdam þann 22. maí en Daði stígur á sviðið á seinna undankvöldinu þann 20. maí.
Daði birti skjáskot af lista Eurovision World í gær þar sem hann trónir á toppnum. Hann vísaði í Donald Trump Bandaríkjaforseta og skrifaði „Stop the count“ eða „Stöðvið talninguna“ við skjáskotið.
Stop the count!!! pic.twitter.com/ZXplCIBKq8
— Daði Freyr 🥑 (@dadimakesmusic) January 19, 2021