Leikarinn Dustin Diamond greindist með lungnakrabbamein á fjórða stigi. Diamond greindi frá því í síðustu viku að hann hefði verið lagður inn og seinna kom í ljós að hann væri með krabbamein. Hann var þó ekki kominn með formlega greiningu á hvernig krabbameini og á hvaða stigi.
Um er að ræða smáfrumuþekjuvefjarkrabbamein í lungum. Meinið er illkynja og sjaldgæft en oft má rekja það til reykinga. Slíkt krabbameinsæxli er stundum hægt að fjarlægja í aðgerð séu þau nægilega lítil en oftast er notast við lyfjameðferð.
Diamond, sem er 44 ára, er hvað þekktastur fyrir að hafa farið með hlutverk Samuels „Screech“ Powers í Saved by the Bell-þáttunum.
„Þetta er ekki gott, alls ekki gott. Hann mun þurfa að vera á spítalanum í einhvern tíma. Hann kemst í gegnum meðferðirnar núna. Þetta er erfitt, mjög erfitt. Hann er mjög verkjaður en er samt í góðu skapi. Núna þjáist hann mikið,“ sagði heimildamaður Us Weekly.