Ár er liðið frá því körfuboltamaðurinn Kobe Bryant lést í skelfilegu þyrluslysi í Calabasas í Kaliforníu. Með honum í þyrlunni var 13 ára dóttir hans, Gianna. Götulistamenn í Los Angeles hafa skreytt borgina með fallegum verkum til minningar um þennan magnaða íþróttamann sem lést langt fyrir aldur fram.
Bryant var af mörgum talinn einn besti körfuboltamaður allra tíma. Hann var 41 árs að aldri og lét eftir sig þrjár dætur og eiginkonu. Heimsbyggðin syrgði og syrgir enn þennan mikla íþróttamann sem var goðsögn innan vallarins sem utan.
Bryant var áberandi utan vallar og var hann meðlimur í rapphljómsveit, lék í þáttum og bíómyndum, gaf út bók og leikstýrði teiknimynd sem vann Óskarsverðlaun sem besta stuttmynd í flokki teiknimynda.
Þá var hann mikill stuðningsmaður kvenna í íþróttum og hvatti dætur sína til dáða í þeim efnum. Var hann oft með dætrum sínum á leikjum í WNBA, kvennadeild NBA, og þjálfaði unglingalið dætranna.
Bryant spilaði lengst af með körfuboltaliðinu Los Angeles Lakers en hann hafði verið stuðningsmaður Lakers frá barnsaldri.