Leikkonan Jamie Lee Curtis segist vera orðin alveg rugluð í heimsfaraldrinum. Á dögunum gerði hún þau mistök að setja poppkorn í eyrað á sér í misgáningi en hún hélt að hún væri að setja airpods-heyrnartól í eyrað á sér.
„Ég er alveg búin að fá nóg af þessari einangrun. Ég tók upp heyrnartólið mitt og setti það í eyrað og var að reyna að finna út af hverju ég heyrði ekki neitt,“ skrifaði Curtis undir mynd af sér með popp í eyranu.