Íslenska stuttmyndin Já-fólkið, eða Yes-People er á stuttlista Akademíunnar fyrir Óskarsverðlaunin. Myndin er tilnefnd í flokki bestu teiknuðu stuttmyndanna.
Stuttmyndin er eftir Gísla Darra Halldórsson sem leikstýrði, skrifaði handritið og framleiddi myndina ásamt Arnari Gunnarssyni.
Í Já-fólkinu er íbúum í blokk fylgt eftir í einn dag. Stuttmyndin var valin besta íslenska stuttmyndin á RIFF á síðasta ári.
Tilkynnt var um stuttlistann fyrir Óskarsverðlaunin í gær, þriðjudag, en tilnefningarnar verða tilkynntar 15. mars. Verðlaunahátíðin fer svo fram 25. apríl.
Með Yes-People á stuttlistanum eru 9 myndir en 96 myndir voru sendar inn.