Poppstjarnan Justin Timberlake hefur beðist afsökunar á framkomu sinni við Britney Spears og Janet Jackson á fyrsta áratug þessarar aldar. Hann hefur sætt mikilli gagnrýni á samfélagsmiðlum undanfarna viku fyrir framkomu sína í garð Janet og Britney.
Timberlake og Spears opinberuðu samband sitt árið 2000 og var mikið fjallað um sambandsslit þeirra nokkrum árum síðar. Er meðal annars talið að lagið Cry Me A River fjalli um Spears. Er Timberlake sagður hafa stýrt frásögninni um sambandsslit þeirra.
Tmberlake bað Jackson afsökunar vegna Ofurskálarinnar árið 2004. Timberlake og Jackson tróðu þar saman upp en Timberlake beraði á ákveðnum tímapunkti annað brjóst Jackson. Afleiðingarnar fyrir Jackson urðu margfalt verri en fyrir Timberlake, en lög hennar voru tekin úr spilun á fjölmörgum útvarpsstöðum auk þess sem hún var látin segja af sér kvikmyndarhlutverki.
„Ég hef séð skilaboðin, ummælin og áhyggjurnar og ég vil bregðast við þeim. Mér þykir innilega fyrir þeim tímapunktum á ævi minni þar sem gjörðir mínar voru hluti af vandamálinu,“ sagði Timberlake í langri færslu á Instagram.
Á föstudag fyrir viku kom út heimildamynd um lögráðamannsmál Britney Spears. Heimildamyndin hefur vakið mikla athygli og endurvakið hreyfinguna #FreeBritney sem berst fyrir því að Britney verði sjálfráða á ný. Þá þykir myndin einnig varpa ljósi á það hvernig fjölmiðlar komu fram við Britney á hennar yngri árum, sérstaklega í kjölfar sambandsslita hennar og Timberlake sem voru áður par.