Bridgerton-stjarnan Regé-Jean Page á kærustu í leyni. Sú heppna er rithöfundurinn og fótboltakonan Emily Brown. Page hefur ekki greint frá henni í viðtölum og ekki sýnt frá henni á samfélagsmiðlum.
Samkvæmt heimildum Mail on Sunday búa Page og Brown saman í norðurhluta London-borgar og sáust faðmast úti á götu nýlega áður en hann flaug til New York-borgar.
Page sló nýlega í gegn í þáttunum Bridgerton þar sem hann fer með aðalhlutverkið. Page er staddur í New York vegna þess að hann mun koma fram í Saturday Night Live 20. febrúar.