David Furnish, eiginmaður Eltons Johns, ljóstraði því upp á dögunum að eiginmaður hans hefði lést í kórónuveirufaraldrinum. Undanfarið ár hefur verið erfitt fyrir marga en Furnish segir árið hafa verið frábært hjá fjölskyldunni.
Furnish sagði í breskum morgunþætti að árið hefði verið yndislegt vegna þess að þeir fengu tíma til þess að gera margt skemmtilegt saman. Furnish sagði þá meðal annars hafa horft á margar kvikmyndir og mikið af sjónvarpsefni. „Elton heldur áfram að hlusta á nýja tónlist, hann hlustar á allt sem kemur út.“
Margir kannast við að hafa bætt á sig í heimsfaraldrinum en tónlistarmaðurinn Elton John nýtti tímann og byrjaði í nýju heilsuátaki. „Hann byrjaði að hreyfa sig og er á mataræði, hann hefur lést, hann hefur hugsað mjög, mjög vel um sjálfan sig. Við höfum verið mjög uppteknir, hamingjusamir og ánægðir og það sem skiptir mestu máli; varið meiri tíma saman sem fjölskylda og ég elska það,“ sagði Furnish sem væri þó til í að börnin þeirra kæmust bráðum í skólann.