Bandaríska leikkonan Brooke Shields er á batavegi eftir að hún lærbrotnaði. Shields birti myndband af sér á Instagram þar sem hún staulast áfram á hækjum.
Shields greindi ekki frá því hvernig hún braut á sér lærið.
Í myndbandinu lýsir hún því hvernig hún má bara setja fimmtung af líkamsþyngd sinni á fótlegginn þegar hún gengur. „Markmiðið er að beygja hnéð aðeins í hvert skipti, svo þú sért ekki að draga það eða að snúa upp á mjöðmina,“ sagði Shields í myndbandinu.
„Braut lærlegginn. Er á batavegi. Sama hver áskorunin er, gerðu hana að jákvæðu vali, fyrir þig sjálfa, haltu áfram,“ skrifaði Shields.