Aðgerð sem Filippus prins gekkst undir á miðvikudaginn heppnaðist vel. Aðgerðin var gerð vegna hjartveiki sem Filippus glímir við en prinsinn verður 100 ára í júní. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Buckingham-höll.
Eiginmaður Elísabetar Bretadrottningar hefur dvalið í 16 nætur á spítala. Filippus verður áfram í nokkra daga á spítala vegna veikinda sinna og til þess að ná sér. Prinsinn var lagður inn á spítala vegna sýkingar í febrúar. Hann var færður á St Bartholomew-spítlann á mánudaginn þar sem hann fór í frekari rannsóknir vegna hjartveikinnar.